Bætur skertar vegna gáleysis

Dæmi um skerðingu bóta vegna gáleysis má sjá í samantekt …
Dæmi um skerðingu bóta vegna gáleysis má sjá í samantekt úrskurða úrskurðarnefndar í vátryggingamálum árið 2021. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Maður skyldi aldrei þiggja far hjá ökumanni sem er undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa. Þess eru dæmi að farþegar, sem setið hafa í bíl hjá vímuðum ökumanni og slasast í umferðarslysi, fái ekki fullar bætur úr ábyrgðartryggingu bílsins. Dæmi um slíkt má sjá í samantekt úrskurða úrskurðarnefndar í vátryggingamálum árið 2021. Nefndin úrskurðaði í alls 472 málum það ár.

Slys á leið úr samkvæmi

Ökumaður var á leið úr samkvæmi í Breiðholti og voru tveir farþegar í bílnum. Bíllinn rann á kant við götuna og þaðan á ljósastaur.

Tryggingafélagið lét annan farþegann vita að bótaréttur hans úr ábyrgðartryggingu bílsins yrði skertur, því ökumaðurinn var ölvaður. Farþeginn hefði sýnt stórkostlegt gáleysi með því að þiggja farið.

Farþeginn mótmælti þessu, enda þyrfti að sýna fram á að honum hefði verið ljóst að ökumaðurinn hefði verið ölvaður. Farþeginn kvaðst alfarið vera á móti ölvunarakstri og ökumaðurinn ekki upplýst farþegana um ölvunarástand sitt. Samkvæmt lögregluskýrslu var ökumaðurinn ölvaður og einnig undir áhrifum fíkniefna og óhæfur til að aka.

Talið var að farþeganum hefði ekki átt að dyljast ástand ökumannsins. Farþeginn hefði því sýnt af sér stórfellt gáleysi með því að þiggja farið og þannig verið meðvaldur að tjóni sínu. Bætur farþegans úr ábyrgðartryggingu bílsins voru því skertar um 2/3 .

Krafðir um greiðslu

Akstur undir áhrifum áfengis, lyfja eða annarra vímugjafa, er algengasta ástæða þess að tryggingafélögin gera endurkröfur á hendur tjónvöldum í umferðinni.

Vátryggingafélögin vísa málum til endurkröfunefndarinnar þegar tjónvaldur hefur ekið undir áhrifum eða sýnt stórfellt gáleysi. Tryggingafélagið greiðir þeim bætur sem verður fyrir tjóninu en getur gert endurkröfu á hendur þeim sem ók undir áhrifum eða mjög ógætilega.

Nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert