„Í suðri er Rauðasandur mót hafi og sól. Í vestri, austri og norðri veita há fjöllin skjól fyrir ríkjandi vindáttum, svo oft er hér alveg dásemdarveður, sem bætist þá við einstaka náttúrufegurð hér,“ segir Ástþór Skúlason, ferðaþjónustubóndi á Melanesi á Rauðasandi. Margir hafa lagt leið sína þangað í sveit að undanförnu, samanber að á þeim tíma þegar að mestu tók fyrir utanlandsferðir í faraldrinum fræga, sótti landinn Ísland heim og lét sér vel líka.
Innst á Rauðasandi er Melanes, þaðan sem er frábært útsýni yfir rauðleitar fjörurnar og til Látrabjargs, sem þarna er útvörður í vestri. Síðustu árin hafa þau Ástþór og Sigríður María Sigurðardóttir, kona hans, sett kraft í uppbyggingu ferðaþjónustu – í því skyni að skapa sér atvinnu. Ástþór slasaðist alvarlega í bílslysi fyrir um tuttugu árum og hefur verið í hjólastól síðan. Á Rauðasandi vilja þau þó vera og hvergi annars staðar. Hefðbundinn búskapur hentar Ástþóri ekki og því varð að breyta um kúrs. Því lá beint við að hasla sér völl í þjónustu við ferðafólk og kynna staðinn sem slíkan. Þetta hefur virkað vel.
„Við opnuðum tjaldsvæðin hér í maí og fyrstu vikurnar voru erlendir ferðamenn mest áberandi. Núna í júlí eru Íslendingar hins vegar mest áberandi og bara gaman að því. Þegar best lætur hafa næturgestir á tjaldsvæðinu hér á Melanesi verið um 500, enda þótt staðurinn taki talsvert fleiri,“ segir Ástþór. „Flestir eru hér í tjöldum eða farhýsum ýmiss konar. Fyrir nokkrum árum reistum við hér þrjú smáhýsi sem taka tvo til þrjá í gistingu hvert. Þau hafa verið uppbókuð á nánast hverri nóttu í sumar, sem segir okkur að grundvöllur sé fyrir uppbyggingu hér. Eðlilega lét maður allt slíkt bíða meðan á heimsfaraldri stóð og óvissuástand ríkti. Nú er hins vegar að rætast úr – og þá horfir maður fram á veginn.“
Skel í rifjum úti á Breiðafirði sem molnar og rekur með straumum á land mótar svip lands og náttúru í Rauðasandi, sem þannig ber nafn með rentu. Úr sunnanverðum Patreksfirði liggur leiðin yfir Skersfjall og svo um sneiðinga í bröttum brekkum í Bjarngötudal. Þar er komið á Rauðasand, sem er heitur reitur í fleiri en einum skilningi. Bæði er sveitin orðin vinsæll ferðamannastaður og skjólið, sem fjöllin veita þarna, ræður miklu um hitastig.
„Á sumrin koma stundum þannig dagar að á veðurathugunarstöðinni á Lambavatni, hér yst á Rauðasandi, er tíu gráðum hlýrra en á Patreksfirði, hér rétt norðan við okkur. Ferðafólk velur því oft að vera hér á Melanesi í nokkra daga í senn – og gerir þá héðan út á áhugaverða staði, svo sem á Látrabjarg og í Ketildali. Vestfirðir koma sterkir inn – og staðan verður vonandi enn betri þegar betri vegir í Reykhólasveit og á Dynjandisheiði eru komnir í gagnið,“ segir Ástþór á Melanesi að síðustu.