Sérsveit ríkislögreglustjóra er með viðveru við Rauðarárstíg í miðbæ Reykjavíkur sem stendur.
Hið minnsta einn sérsveitabíll og annar merktur lögreglubíll er á svæðinu að sögn sjónarvotta.
Bílarnir eru staddir rétt norðan við Hlemm, ekki svo langt frá lögreglustöð 1 í Reykjavík.
Ekki liggur fyrir að svo stöddu um hvað aðgerðir sérsveitarinnar snúast á svæðinu.