Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum.
Er þetta ákvörðun ríkislögreglustjóra í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum.
Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi í Krýsuvík vegna flugumferðar, en mesta skjálftavirknin er norðaustan við Fagradalsfjall.
Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni.
Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar.
Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað.
Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila. Á óvissustigi fara viðbragðsaðilar og stofnanir yfir áætlanir sínar og viðbúnað.