Tólf einstaklingar voru kærðir fyrir fíkniefnabrot síðastliðinn sólarhring í Vestmannaeyjum og var hald lagt á „nokkurt magn fíkniefna“ í einu tilfelli. Önnur mál voru þó minniháttar.
Fyrsta nótt þjóðhátíðar var að öðru leyti afar róleg hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum, að því sem fram kemur í tilkynningu.
Einn var kærður fyrir akstur undir áhrifum áfengis og annar fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.
Þá komu engin ofbeldisbrot til kasta lögreglu en einn gisti í fangageymslu sökum ölvunarástands.
„Það er mat lögreglu að hátíðahöldin hafi farið vel fram í nótt og fólk almennt skemmt sér fallega,“ segir svo í tilkynningunni.