Kona féll fjóra metra af bakka niður í fjöru við Hauganes klukkan hálftólf í gærkvöldi. Betur fór en á horfðist og konan er lítið slösuð.
Lögreglan í Fjallabyggð var kölluð til, sem og björgunarsveitir, enda var talið að sækja þyrfti konuna í fjöruna frá sjó. Þær voru svo afboðaðar þegar í ljós kom að hægt var að koma konunni til aðstoðar frá landi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Þá var lögregla kölluð til vegna ökumanns sem grunaður var um að keyra undir áhrifum vímuefna en hann hafði veist að konu og svo ekið í burtu. Lögreglumenn sáu bifreiðina og gáfu stöðvunarmerki sem ökumaður sinnti ekki heldur ók áfram á miklum hraða mót einstefnu og yfir umferðareyjar.
Eftir nokkurra mínútna eftirför, sem endaði við iðnaðarbil í bænum, stökk maðurinn út úr bifreiðinni en náðist skömmu síðar og var handtekinn og færður á lögreglustöð og síðan vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.
Rétt eftir miðnætti var svo maður handtekinn á Siglufirði sem sagðist vopnaður hnífi. Sérsveit ríkislögreglustjóra á Akureyri var kölluð út vegna mannsins, en stuttu síðar náðu lögreglumenn á Siglufirði að handtaka hann „án vandkvæða“. Var hann færður á lögreglustöðina á Akureyri og vistaður þar.
Á gatnamótum Ólafsfjarðar og hringvegar varð árekstur með tveimur bifreiðum klukkan hálftólf í gærkvöldi. Sjúkralið og lögregla fóru á staðinn en meiðsl voru minniháttar.
Ölvun og ágreiningur var á tjaldsvæðinu við Hamra klukkan hálfþrjú í nótt og var lögreglan á Akureyri kölluð út vegna þessa. Tókst að leysa ágreininginn án þess að fjarlægja þyrfti fólk eða vista í fangageymslu.
Tilkynnt var um ógnandi framkomu gests á skemmtistaðnum Sjallanum á Akureyri gegn dyraverði. Lögregla var jafnframt kölluð til vegna þess en málið leystist á staðnum.
Þá ók lögregla nokkrum ofurölvi einstaklingum heim á leið. Í dagbók lögreglu segir að einstaklingarnir hafi fengið sér heldur mikið „neðan í því“ og verið orðnir frekar lasnir af þeim sökum.
Klukkan fjögur í nótt fékk lögregla beiðni frá bráðamóttöku sjúkrahússins á Akureyri vegna manns sem þar var „óstýrilátur“. Sá hafði verið fluttur þangað af lögreglu stuttu áður vegna ástands. Málið leystist í samvinnu lögreglu og heilbrigðisstarfsmanna.
„Einhver hiti var í mönnum við Götubarinn í Hafnarstræti um klukkan fjögur í nótt og veittust þar nokkrir menn að einum sem tókst að koma sér í skjól á veitingastaðnum og biðja um aðstoð. Maðurinn var fluttur á bráðamóttöku SAk.“
Þá var tilkynnt um ungan dreng á ferðinni í bifreið sem hann hafði tekið í óleyfi snemma í morgun. Þegar lögregla kom á staðinn hafði drengurinn skilað bifreiðinni óskemmdri til eiganda síns. Verður háttalag hans engu að síður tilkynnt barnaverndaryfirvöldum.
Lögregla var svo með strangt eftirlit í umdæminu og voru margir ökumenn stöðvaðir þar sem kannað var með ástand og réttindi.
Að auki er lögregla þessa dagana við hálendiseftirlit og með bækistöð við Drekagil í Öskju. Aðstoðaði lögregla meðal annars ferðalanga í gær sem höfðu fengið vatn inn á vél bifreiðar sinnar við að aka yfir á.
Einnig leiðbeindi lögreglan fjölda fólks með ferðaleiðir vegna veðurs og færðar. Lögreglan verðu áfram með viðdvöl þarna fram yfir helgi og út sumarið með stuttum hléum.