Enn skelfur jörð

Fagradalsfjall.
Fagradalsfjall. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrír stórir jarðskjálftar mældust á innan við hálftíma, sá stærsti mældist 3,3 að stærð.

Klukkan 15:11 varð skjálfti sem var 3,1 stig og mældist á 4,3 kílómetra dýpi.

Klukkan 15:33 varð annar sem var 3,3 stig og á 2,2 kílómetra dýpi og sjö mínútum síðar varð þriðji skjálftinn sem mældist 3,2 að stærð. Hann var á 2,7 kílómetra dýpi. 

Nokkuð hefur hægst á skjálftavirkninni á Reykjanesskaga en um 20 skjálftar hafa mælst yfir þrír á stærð frá miðnætti. 

Sá öfl­ug­asti var 4,2 stig og varð hann klukk­an 4:06 í nótt.

Nú mæl­ast flest­ir skjálft­arn­ir á 2 til 4 kíló­metra dýpi, og hef­ur því grynnkað tals­vert á skjálfta­virkn­inni sem mæld­ist í gær á 5 til 7 kíló­metra dýpi. Skjálfta­virkn­in og grynnk­un henn­ar gæti verið merki um að kvik­an sé að brjóta sér leið upp jarðskorp­una. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert