Húsið á Hrauni nötraði

Hafliði Harðarson á Hrauni með brotna kaffikönnu.
Hafliði Harðarson á Hrauni með brotna kaffikönnu. mbl.is/Sigurður Bogi

„Skjálftarnir koma hver á eftir öðrum og maður finnur vel fyrir þeim. Húsið hér kipptist til og nötraði,“ segir Hafliði Harðarson á Hrauni sem er skammt austan við Grindavík.

Bærinn er skammt frá upptökum stóra skjálftans sem reið yfir rétt fyrir klukkan 18 í kvöld. Sá fannst víða um sunnan- og vestanvert landið, þá ekki síst á Reykjanesskaganum.

Hafliði segir að sú tilfinning sem skjálftarnir skapi í brjósti sér sé eðlilega ekki beint þægileg. Hann sé þó ekki hræddur. Umbrotin í aðdraganda eldgossins á síðasta ári hafi kennt sér sitthvað og þjálfað hugann.

„En hristingurinn núna er öflugur og sjálftarnir eru mjög kvikir.“

Steinar hrundu úr hlöðnu steingerði á Hrauni.
Steinar hrundu úr hlöðnu steingerði á Hrauni. mbl.is/Sigurður Bogi

Mikil umferð á Suðurstrandarvegi

Í hillum bílskúrs á Hrauni hefur sitthvað hrunið úr hillum; lausamunir og slíkt. Gömul kaffikanna er mölbrotin rétt eins og fleiri munir úr gleri. Nokkuð hefur borist af tilkynningum um skemmdir í Grindavík og verið er að kanna þau mál betur.

Um 4-5 kílómetrar eru frá Hrauni í Geldingadali, þar sem eldurinn kraumaði í fyrra. En er Grindavíkurgos að bresta á?

„Maður ætti að minnsta kosti að vera við öllu búinn,“ segir Hafliði og bætir við að fólk fylgist greinilega af áhuga með framvindunni, enda hafi mikil umferð bíla verið á Suðurstrandarvegi í dag.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert