Kórónuveiran vann furðubátakeppnina

Traktoratorfæran fór fram í Torfadal.
Traktoratorfæran fór fram í Torfadal. Ljósmynd/Aldís Hafsteinsdóttir

Hátíðin Flúðir um Versló hefur heppnast gríðarlega vel að sögn Aldísar Hafsteinsdóttur, sveitarstjóra Hrunamannahrepps. 

Er blaðamaður náði tali af Aldísi sagðist hún giska á að um 20 stiga hiti væri á Flúðum og sólskin. 

Ljósmynd/Aldís Hafsteinsdóttir

„Þetta er engu lagi líkt. Það er búið að vera einstaklega gott veður, milt og stillt. Þetta er náttúrulega bara svo mikil sumarparadís hér,“ segir hún og bætir við að stemningin sé góð en alls konar dagskrá hefur verið í boði um helgina.

Meðal annars dansleikir öll kvöld, kastalar og leiktæki og þá fór hin vinsæla traktoratorfæra fram í gær. 

„Það er mikið af fólki og allir svo glaðir og kátir,“ segir Aldís og bætir við að hátíðin hafi farið vel fram. 

Í dag fór fram furðubátakeppni á Litlu-Laxá sem hún segir að hafi verið dásamlegt að fylgjast með. Báturinn kórónuveiran vann keppnina.

Kórónuveiran sigraði furðubátakeppnina.
Kórónuveiran sigraði furðubátakeppnina. Ljósmynd/Aldís Hafsteinsdóttir

Hátíðinni lýkur í kvöld á brennu og brekkusöng í Torfdal áður en heimamannaball verður í félagsheimilinu fram á nótt. Þar munu Jónsi og Unnur Birna koma fram ásamt hljómsveit.

Ljósmynd/Aldís Hafsteinsdóttir
Furðubátakeppnin fór fram í dag.
Furðubátakeppnin fór fram í dag. Ljósmynd/Aldís Hafsteinsdóttir
Aldís segir að dásamlegt hafi verið að fylgjast með keppninni.
Aldís segir að dásamlegt hafi verið að fylgjast með keppninni. Ljósmynd/Aldís Hafsteinsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert