Spáð er vestlægri átt í dag, 5-13 m/s en 13-20 með norðausturströndinni fram á kvöld. Gular veðurviðvaranir vegna vinds eru í gildi til kvölds.
Kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands að vindáttin sé vestlæg vegna þess að dálítil lægð hefur grafið um sig skammt norðaustur af Langanesi.
Spáð er rigningu með öflum á norðanverðu landinu, annars smá skúrum en bjartviðri suðaustan til.
Þá er spáð 5 til 9 stiga hita norðantil en 8 til 15 stig syðra. Mildast verður á Suðausturlandi.
Á morgun er spáð norðankalda- eða strekkingi á vestanverður landinu en mun hægara fyrir austan. Dálítil rigning eða skúrir verða orðan til en bjart sunnan heiða. Þá verður áfram mildra syðra en svalt fyrir norðan.