Síðasti keppnisdagur á Unglingalandsmóti UMFÍ fór vel af stað í morgunsárið. Fyrstu greinar hófust klukkan níu í morgun og dagskrá stendur yfir fram á kvöld líkt og verið hefur síðustu daga.
Að sögn fréttaritara mbl.is á staðnum var mikið fjör á kvöldvöku á tjaldsvæðinu í gærkvöldi þar sem fjöldi tónlistarmanna kom fram.
Þúsundir manna eru á svæðinu og hefur verið keppt í fjölmörgum greinum á afar glæsilegri íþróttaaðstöðu Selfyssinga.
Þá var til að mynda í síðustu viku unnið hörðum höndum að gerð vallar fyrir strandblak og strandhandbolta.
Ræst hefur vel úr veðrinu, að jafnaði prýðis þurrkur en ekki hægt að tala um mikil hlýindi þótt sólin ylji inn á milli. Mótinu verður svo slitið í kvöld með glæsilegri flugeldasýningu.