Í dag er spáð norðvestlægri átt, víða 5-13 m/s og rigningu öðru hvoru á norðanverðu landinu. Eftir hádegi verður norðlág átt, 8-15 m/s vestan til en annars hægari.
Segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands að bæði verði mildara og bjartara syðra en á norðanverðu landinu þar sem verður fremur svalt.
Spáð er 5 til 9 stiga hita fyrir norðan en 8 til 18 stiga hita syðra.
„Í stuttu máli ágætt ferðaveður þannig að allir ættu að komast heim eftir helgina,“ segir í hugleiðingunum.