Bæjarstjórinn fundaði með almannavörnum

Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur.
Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, var staddur út á landi í byrjun helgarinnar en dreif sig heim þegar stærstu jarðskjálftarnir gerðu vart við sig. Hann fór því ekki varhluta af því að finna jarðskjálftana í nótt og í morgun. 

Í Grindavík hafa smærri húsmunir fallið úr hillum, svo sem styttur, vasar og myndir af veggjum. Að öðru leyti hefur Fannar ekki heyrt af neinum meiriháttar skemmdum eða meiðslum á fólki. 

„Miðað við hvað þetta berst langar leiðir þá verðum við minna vör við skjálftana en ætla mætti af nálægðinni.“

Grindvíkingar búi sig undir óróatímabil

Fannar segir bæjarbúa vera farna að venjast skjálftunum að vissu leyti, en þeir hafi vissulega valdið vonbrigðum eftir þægilegt og rólegt tímabil. 

„Það er búið að segja okkur að framundan sé óróatímabil og við þurfum víst bara að búa okkur undir að lifa með því. Gæta okkar og okkar fólks og passa að hlutir séu hvorki að valda tjóni né skemmast.“

Eldgos ekkert lamb að leika sér við

Fannar fundaði með almannavörnum í hádeginu. „Við vorum að bera saman bækur. Þetta var svona stöðufundur fyrir þá sem eru í innsta hring almannavarna. Þá komu einnig á fundinn fræðimenn sem báru á borð nýjustu upplýsingar úr mælitækjum og sína hugrenninga.“

Komi til þess að skjálftarnir verði hættulegir, eða að eldgos verði, eru til taks viðbragðs- og rýmingaráætlanir. Þær voru smíðaðar þegar fyrstu hrinurnar fóru að láta til sín taka fyrir tveimur árum, en hafa verið uppfærðar síðan. 

„Það er ekki langt síðan að jarðskjálftahrina sem þessi endaði með eldgosi svo sá möguleiki er alltaf í stöðunni. Þá fór það vel, enda braust gosið út á besta stað og jarðskjálftarnir hættu um leið, sem mönnum þótti nokkuð góð skipti.“

Hann bætir þó við að eldgos sé ekkert lamb að leika sér við, ef svo ber undir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert