Einn einn kröftugur skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu klukkan 11.06 í morgun.
Samkvæmt mælingum Veðurstofunnar var hann 4 að stærð og mældist á 5,1 km dýpi.
Upptök skjálftans voru 4,3 kílómetra austur af Keili.
Fimm skjálftar hafa mælst stærri en 4 frá miðnætti. Þá hafa samtals mælst 104 skjálftar stærri en 3 á síðustu 48 klst.
Næststærsti skjálfti hrinunnar sem hófst á hádegi á laugardag mældist í morgun kl. 06.27 og var hann 4,7 að stærð. Stærsti skjálftinn mældist í gær rétt fyrir klukkan sex en hann var 5,4 að stærð.
Fréttin hefur verið uppfærð.