Grunur um íkveikju á Hverfisgötu

Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt.
Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlmaður var handtekinn á vettvangi í dag grunaður um íkveikju og þjófnað á Hverfisgötu og innbrot í Grundarhvarfi í Kópavogi, að því er kemur fram í dagbók lögreglu.

Lögreglunni barst tilkynning um reykskynjara í gangi í húsi á Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur klukkan 00.40. Lögreglumenn fóru í húsið og slökktu eldinn sem var minniháttar og slökkviliði reykræsti.

Tilkynnt var skömmu síðar um húsbrot í Grunarhvarfi í Kópavogi og var þar sami maður að verki en hann hafði einnig framið eignaspjöll og veist að húsráðanda. Kemur til skoðunar síðar í dag hvort að farið verði fram á gæsluvarðhald að yfirheyrslum loknum.

Byssan reyndist leikfangabyssa

Á sjötta tímanum í nótt fékk lögreglan tilkynningu um að karlmaður væri með skammbyssu við Smáralind. Maðurinn sem er á 18. aldursári var handtekinn og færður á næstu lögreglustöð. Var bæði barnavernd og foreldrum gert viðvart en við skoðun kom í ljós að skammbyssan var leikfang.

Þá var kona á þrítugsaldri handtekin eftir að hafa ráðist á vegfaranda og slegið hann í andlitið. Segir að vegfarandinn hafi ekki hlotið mikla áverka en að hann hafi verið mjög ósáttur við hegðun konunnar sem var vistuð í fangageymslu.

Annað ofbeldisbrot átti sér stað fyrr um kvöldið þegar lögreglumaður var beittur ofbeldi af konu sem hafði verið handtekin á heimili sínu eftir að hafa beitt heimilisfólk sitt ofbeldi. Konan var undir miklum áhrifum áfengis og gistir nú fangageymslu.

Sturtusláin snerist gegn honum

Rétt eftir eitt í nótt varð ferðamaður fyrir barðinu á íslenska vatninu þegar slys varð á hóteli í Reykjavík.  

„Ferðamaður sem ætlaði að prófa gæði íslenska sturtuvatnsins varð fyrir því óláni að sturtusláin snerist gegnum honum og féll á hann í miðri athöfninni. Ferðamaðurinn hlaut eymsli eftir að hafa fallið niður í sturtubotninn undan sláni, hvílíkir kraftar sem íslenska vatnið hefur,“ segir í dagbókinni.

Þrátt fyrir að ýmislegt hafi gengið á hjá lögreglunni í nótt segir hún að rólegt hafi verið í miðborginni í tengslum við skemmtanalífið og fá mál komið upp tengd því. Fimm gista fangageymslu og aðeins einn tengist skemmtanalífinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert