Handtekinn og reyndist eftirlýstur

Var árásarmaðurinn handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Var árásarmaðurinn handtekinn og vistaður í fangageymslu. mbl.is/Ari

Lögregla var kölluð til eftir líkamsárás í Árbæ um eittleytið í dag en árásarmaðurinn reyndist eftirlýstur hjá lögreglu í öðru máli.

Hann var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu en sá er varð fyrir árásinni leitaði aðstoðar á bráðadeild.

Brotist inn í frístundaheimili

Þá var brotist inn í frístundaheimili í miðborginni á áttunda tímanum í morgun og töluverðar skemmdir unnar á húsnæðinu en lögregla telur engu hafa verið stolið. 

Einn var þá handtekinn í miðbænum um þrjúleytið í dag, grunaður um líkamsárás en árásarþoli var með áverka í andliti og á háls. Hugðist hann sjálfur leita sér aðstoðar á bráðadeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert