Fjölskylduhátíðinni „Ein með öllu“ lauk í gær með stórglæsilegri flugeldasýningu á Leikhúsfletinum á Akureyri.
Eins og sjá má á myndum var fjölmennt og skemmtu gestir sér konunglega á Stóru sparitónleikunum svokölluðu.
Fram komu Páll Óskar, Clubdub, Birnir, Stjórnin, Eik Haralds og Ragga Rix. Þá stýrðu Jónína Björt og Ívar Helga brekkusöngnum.
Lögreglumenn á Norðurlandi eystra voru með göngueftirlit við flötina á meðan á tónleikahaldi stóð.
„Fólk virtist flest vera að skemmta sér vel og mikil stemming var hjá fólki. Það er alltaf gaman þegar hægt er að fara í göngueftirlit og gefa sig á tal við fólk og ræða um daginn og veginn,“ segir í facebook-færslu lögreglunnar.