Icelandair hafi gleymt hjólastólnum í tvígang

Maðurinn flaug frá Kaupmannahöfn til New York með millilendingu í …
Maðurinn flaug frá Kaupmannahöfn til New York með millilendingu í Keflavík. mbl.is/samsett mynd

Farþegi sem ferðaðist með Icelandair, þurfti að komast af í nokkra daga án sérsmíðaða hjólastólsins síns, eftir að flugfélagið Icelandair gleymdi að setja hjólastólinn í flugvélina á leið til New York. Hið sama gerðist á leið heim, að því er fram kemur í frétt Business Insider.

Þar greinir maður að nafni Michael Strunk Kristiansen frá raunum sínum. Hann flaug frá Kaupmannahöfn til New York þann 6. júlí, með millilendingu í Keflavík.

Fyrir sex mánuðum gekkst Kristiansen undir nokkrar aðgerðir sem urðu þess valdandi að hann er ekki fær um gang, heldur þarf að nota hækjur og sérútbúinn hjólastól.

Ferð Kristiansen til New York, ásamt eiginkonu sinni, var fyrsta flugferð hans í hjólastól. „Þetta voru mikil vonbrigði,“ segir hann í samtali við erlenda miðilinn.

Rataði ekki aftur um borð

Áður en hann fór um borð í flugvélina í Kaupmannahöfn, afhenti hann starfsfólki hjólastólinn sinn og fékk í staðinn hjólastól að láni frá flugstöðinni. Þá nýtti hann hækjurnar til þess að komast í sæti sitt í flugvélinni.

Þegar hann lenti í Keflavík, var honum boðinn hjólastóllinn sinn aftur en hann sagði starfsfólkinu að hann þyrfti ekki á honum að halda, þar sem hann væri á leið í tengiflug og gæti stuðst við lánshjólastól þar til hann færi um borð í næstu vél.

Eftir þetta rataði sérútbúni hjólastóllinn hans ekki um borð í flugvélina, sem átti eftir að flytja þau hjónin frá Keflavík til New York.

Komst ekki út úr húsi í tvo daga

Kristiansen kveðst hafa þurft að bíða í tvær klukkustundir við töskuafhendinguna í New York, án þess að fá að láni annan hjólastól, þar til honum var gert ljóst að hjólastóllinn hans hafði gleymst á Íslandi.

Í New York komst hann ekki út úr húsi í tvo daga, meðan hann beið eftir því að hjólastóllinn hans skilaði sér.

Þegar hann kom svo aftur heim til Kaupmannahafnar, endurtók sagan sig. Hann þurfti á ný að bíða í klukkustund við töskuafhendinguna þar til ljóst var að hjólastóllinn hafði ekki verið um borð í flugvélinni.

Hann fékk stólinn ekki í hendurnar fyrr en þremur dögum seinna þar sem starfsfólk flugfélagsins hafði á ný gleymt því að setja hjólastólinn um borð.

Borgaði 910 þúsund krónur fyrir flugmiðana

Kristiansen borgaði tæplega 910 þúsund krónur fyrir farmiðana fram og til baka með Icelandair, en hann hafði keypt miða á fyrsta farrými í þeirri von um að það gæti tryggt hjólastólnum meira öryggi, en allt kom fyrir ekki.

Í fréttinni segir að Icelandair hafi ekki boðið honum neinar bætur.

Maðurinn borgaði 910 þúsund krónur fyrir miða í fyrsta farrými …
Maðurinn borgaði 910 þúsund krónur fyrir miða í fyrsta farrými handa sér og konu sinni í þeirri von um að þannig væri hjólastóllinn betur tryggður. Icelandair
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert