Nokkur erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í nótt en alls voru 51 mál skráð, þar á meðal þurfti lögregla að beita piparúða vegna slagsmála.
Slagsmál brutust út í miðbæ Akureyrar um fimm leytið í nótt. Í færslu lögreglunnar segir að beita þurfti piparúða til að tryggja öryggi á vettvangi.
Ekki kom þó til handtöku en lögregla aðstoðaði þá er urðu fyrir áhrifum piparúðans. Rætt var við fólk á vettvangi og var lögregla með viðveru þar til ástand róaðist.
Er blaðamaður náði tali af vaktstjóra hjá lögreglunni um hálf fimm í dag höfðu verkefni dagsins aðallega snúist að umferðareftirliti sem hefur gengið vel.
Hann segir að í heildina hafi helgin verið góð en þó hafi verið talsvert að gera.