Engin umferðarslys hafa orðið það sem er degi en umferðin er þó byrjuð að þyngjast að sögn vaktstjóra hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Er blaðamaður náði tali af lögreglunni rétt eftir klukkan fjögur hafði dagurinn verið mjög rólegur framan af.
„Þetta er byrjað aðeins að þéttast núna. Þetta kemur í skorpum á báðum vegunum en gengur bara mjög vel,“ sagði hann og bætti við að umferðin ætti eftir að þyngjast er liði á daginn.
Lögreglan biðlar til fólks að vera þolinmótt og sýna almenna skynsemi. „Virða þessi blessuðu einföldu lög, þau eru nú ekki flókin.“