Veðrið reyndist þvert á spár

Danshópur skemmti gestum á hátíðinni Einni með öllu.
Danshópur skemmti gestum á hátíðinni Einni með öllu. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Veðurspáin fyrir helgina á Akureyri var ekki upp á marga fiska. „Það rættist nákvæmlega ekkert af henni,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson, skipuleggjandi hátíðarinnar Ein með öllu. 

„Við áttum að vera í rigningu og snjókomu en vorum svo bara í sól og sumri. Það rigndi í smástund á föstudagskvöld en annars var bara fínasta veður.“

Davíð segir hátíðina hafa gengið eins og best var á kosið og kveðst sigri hrósandi eftir helgina. 

„Það var stappað á flötinni þegar sparitónleikarnir fóru fram, það hefðu í raun ekki fleiri komist að. Skemmtistaðirnir voru líka pakkaðir í nótt.“

Skemmtistaðir voru stútfullir.
Skemmtistaðir voru stútfullir. mbl.is/Þorgeir Baldursson
Veðrið fór fram úr öllum væntingum eftir veglega væntingastjórnun í …
Veðrið fór fram úr öllum væntingum eftir veglega væntingastjórnun í boði veðurspámanna. mbl.is/Þorgeir Baldursson
Davíð segir hátíðina hafa gengið eins og best var á …
Davíð segir hátíðina hafa gengið eins og best var á kosið og kveðst sigri hrósandi eftir helgina. mbl.is/Þorgeir Baldursson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert