Verkefni dagsins að „reisa menn við og vekja“

Kátt var í brekkunni um helgina.
Kátt var í brekkunni um helgina. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Lögreglan í Vestmannaeyjum segir að heilt yfir hafi þjóðhátíð farið vel fram þetta árið og nú sé fólk hægt og rólega að tínast af eyjunni.  

Vaktstjóri segir í samtali við mbl.is að gærdagurinn hafi verið rólegur og að fjöldi verkefna lögreglunnar hafi verið undir meðallagi. 

„Miðað við fjöldann þá held ég að þetta hafi bara verið þokkalega gott.“

Nú er fólk á leið aftur í land og segir vaktstjórinn að það taki smá tíma að koma öllum heim á leið.

„Fólk er að fara og það er að týna hlutum. Sumir eru kannski aðeins fram úr sjálfum sér varðandi ölvun og það þarf að reisa menn við og vekja. Það eru málin í dag hjá okkur,“ segir hann.

„Það er gott veður svo það er ekki hægt að kvarta yfir því.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert