Verstu kaup úr Góða hirðinum, upplestur á Íslendingaþætti og afleggjari af blómi frá Auði Laxness eru á meðal þeirra 87 vinninga sem fólk getur unnið í happdrætti söngnemans Gunnlaugs Bjarnasonar.
Gunnlaugur er í meistaranámi í klassískum söng við Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag í Hollandi. Hann efndi til happdrættisins til þess að aðstoða við að framfleyta sér og fjölskyldu sinni á meðan hann klárar námið.
Gunnlaugur hóf nám árið 2020 en tók sér síðan árs pásu til að bæði flýja Covid-19 og til að vera með fjölskyldunni en á þeim tíma átti hann eins árs gamla dóttur.
Alls á hann þrjú börn með eiginkonu sinni Kristínu. Fyrsta árið fluttu þau öll saman til Hollands á meðan Kristín var í fæðingarorlofi.
„Það var meira en að segja það að flytja út með með þrjú börn. Leikskólakerfið úti í Hollandi er mjög dýrt og því mæddi mikið á Kristínu á meðan við vorum þarna saman. Við ákváðum þá að þegar ég færi aftur út myndi ég fara einn og Kristín yrði eftir,“ segir Gunnlaugur og bætir við að staðan sé ekki æskileg.
„En við erum allavega með sterkt bakland hérna heima sem getur hjálpað til með börnin og ég ætla að reyna að koma heim eins oft og ég get.“
Gunnlaugur segir að hugmyndin að happdrættinu hafi komið frá vinkonu hans. „Ég spurði hana bara hvort ég mætti ekki herma eftir og það var auðsótt.“
„Sumir vinningarnir eru frekar sjálfsagðir fyrir söngvara, eins og prívattónleikar og tileinkun á lagi. Aðrir eru frá konunni minni. Hún er til dæmis hörku súrdeigsbakari og er með instagramsíðuna Súri bakarinn. Hún gefur tíu súrdeigsbrauð í vinningapottinn og líka afleggjarana á blómum Auðar Laxness, en fyrir nokkrum árum vann hún á Gljúfrasteini og þegar þurfti að grisja plönturnar hennar Auðar hirti hún nokkra afleggjara sem eru orðnir ansi stórar og fallegar plöntur núna.“
Þá segir Gunnlaugur að sumir vinningarnir hafi sprottið upp úr fjölmörgum áhugamálum hans.
„Ég er til dæmis alveg brjálaður áhugamaður um nytjamarkaði og kaupi ótrúlega mikið þar. Flest af því er mjög flott, þótt ég segi sjálfur frá, en sumt hefur ekki alveg fallið í kramið. Fyrir nokkru kom ég til dæmis heim með fataslá, eða fataprest, sem mér fannst mjög flottur í búðinni. Þegar ég setti hann upp inni í hjónaherbergi sá ég að hann var alveg ógeðslega ljótur. Ég viðurkenndi það samt ekki strax fyrir Kristínu og hann var uppi í nokkrar vikur en núna er hann í geymslunni okkar. Einn heppinn miðahafi getur því unnið þessi verstu kaup mín í nytjamarkaði. Mögulega finnst vinningshafanum þetta bara mjög flottur fatastandur en ég efa það,“ segir Gunnlaugur.
Viðbrögðin við happdrættinu hafa verið mjög góð að sögn Gunnlaugs.
„Það er ótrúlega gaman að sjá að það eru ekki bara nærstaddir vinir eða fjölskylda sem kaupa miða heldur líka bara kunningjar sem ég hef kannski ekki hitt í mörg ár.“
Markmiðið er að selja 500 miða og segist hann bjartsýnn á að það náist.
„Ég setti mér mánuð til að selja þá alla og ég verð bara að bögga alla vini mína og kunningja þangað til. Fólk vill gera hvað sem það getur til að koma mér úr landi.“
Inntur eftir því hvort söngurinn sé Gunnlaugi í blóð borinn segir hann svo vera bæði og.
„Mamma, Elín Gunnlaugsdóttir, er tónskáld og hefur kennt tónlist frá því að ég man eftir mér. Ég byrjaði að læra söng 16 ára en hafði aldrei haft áhuga á að vera í söngnámi fyrir þann tíma og var aldrei í kór. Ég byrjaði bara að syngja vegna þess að ég var í bílskúrsbandi og það þorði enginn annar í bandinu að syngja. Það má því segja að ég hafi byrjað minn söngferil með því að öskursyngja Jailhouse Rock.“
Gunnlaugur segir að fyrsta söngkennaranum hans, Hlín Pétursdóttur, hafi tekist að fá hann til að hafa áhuga á klassískri tónlist. Hann hélt síðan áfram í söngnámi þangað til hann var rúmlega tvítugur. Þá hætti hann og söng ekkert í nokkur ár.
„Vinkona mín minnir mig reglulega á það hvað ég sagði þegar ég hætti, en þá á ég að hafa sagt að óperur væru fyrir hálfvita. Ég get ekki sagt að ég sé sammála sjálfum mér fyrir nokkrum árum.“
Er Gunnlaugur hætti að syngja ákvað hann að fara að læra íslensku við Háskóla Íslands en þar hafði faðir hans, Bjarni Harðarson, áhrif. Bjarni er fornbókasali og rithöfundur og segir Gunnlaugur að þaðan komi áhugi hans á fornbókmenntum.
„Sá áhugi jókst svo bara í náminu og má segja að hafi náð hápunkti þegar ég og kennari minn, Ármann Jakobsson, byrjuðum með hlaðvarpið Flimtan og fáryrði sem er hlaðvarp um íslenskar fornbókmenntir.“
Er leið á háskólanámið fór Gunnlaugur að finna fyrir leiða gagnvart náminu og fann mjög skýrt að hann langaði til að syngja aftur.
Hann kláraði því framhaldsprófið í söng á Íslandi og sótti um skóla úti.
Gunnlaugur segir að það sé frekar opið hvað nemar við konunglega tónlistarháskólann vilji sérhæfa sig í.
„Í Hollandi er til dæmis mikill markaður fyrir flutning á trúarlegum verkum eins og passíum Bachs eða óratoríum Händels þannig að það eru margir sem sérhæfa sig í þeim flutningi en annars eru Hollendingar mjög opnir fyrir því söngvarar taki að sér alls konar verkefni. Þetta er ekki eins og í þýska heiminum þar sem allt er frekar íhaldssamt.“
Gunnlaugur leggur sjálfur mikla áherslu á þýskan ljóðasöng og óperutónlist ásamt stórum kirkjuverkum.
„Svo er mikil áhersla lögð á að allt tónlistarfólkið í skólanum læri að koma sér á framfæri. Við förum líka á fyrirlestra um markaðssetningu og verkefnisstjórnun þannig að þetta er ansi fjölbreytt og gott nám.“
Gunnlaugur fer aftur út til Hollands eftir að hann er búinn að sýna óperuna Mærþöll í Gamla bíói þar sem hann leikur burðarhlutverk. Sýningarnar hefjast í byrjun september og hann fer síðan út eftir lokasýninguna.
Hér má skoða frekar happdrætti Gunnlaugs.