Jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaganum hefur valdið talsverðum skemmdum á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík auk þess sem íbúar þar hafa vaknað upp um miðjar nætur við skjálfta.
„Maður er bæði hræddur og ekki hræddur. Ég hef þekkt jarðskjálfta frá því að ég var barn. Heima hjá mér var píanó og það tók upp á því að spila sjálft í einum svona jarðskjálfta,“ segir Ása Lóa Einarsdóttir, íbúi á Víðihlíð.
Skjálftarnir nú eru sambærilegir þeim sem hún hefur upplifað áður, en Ása hefur búið alla tíð í Grindavík. Henni þykir þó nóg komið.
Í gær fékk Ása aðstoð við að týna hluti niður úr hillum og af veggjum. Spurð hvenær hún ætli að setja hlutina upp aftur segist hún hið minnsta ekki ætla að gera það í dag.
„Mér finnst þetta svolítið óhuggulegt. Þegar maður er svona einn og skjálftarnir eru svona stórir þá er það mjög óþægilegt. Þegar ég fór í morgun fram að sækja Morgunblaðið þá var forstöðukonan að sópa gólfið því það hafði hrunið úr loftinu og veggnum.“
Stefanía Jónsdóttir er forstöðumaður á Víðihlíð. Hún var nýbúin að þrífa eftir að kvarnast hafði úr veggjum og lofti þar sem viðbyggingin tengist upprunalega húsinu þegar blaðamann bar að garði. „Það var eins og viðbyggingin hefði ætlað að rifna af húsinu,“ segir Stefanía.
Stefanía segir að fyrir liggi rýmingaráætlanir ef illa fer, en er þó ekki sérstaklega áhyggjufull, enda þýði það lítið.
Hún reynir að lesa ekki of mikið af því sem fram kemur í fréttum, til þess að verða ekki of upptekin af ástandinu, og tekur því af æðruleysi. „Það tekur því samt varla að rétta við myndir á öllum veggjum,“ bætir hún við glettnislega. Stefanía hefur þó tekið eftir því að mörgum íbúum er ekki rótt yfir skjálftunum.
„Ég sat fyrir framan sjónvapið að horfa á fótbolta og þá hrundi allt í kringum mig, úr hillunum og gluggunum. Ég varð ansi hræddur, ég ætla bara að viðurkenna það,“ segir Albert sem er 92 ára gamall íbúi í Grindavík, þegar hann lýsir því hvernig hann upplifði jarðskjálftann á sunnudag.
„Ég upplifði gosið í Vestmannaeyjum, en ég hef aldrei orðið jafn hræddur og núna,“ bætir hann við, en segist þó ekki hafa orðið var við skjálftann í nótt.