4,2 stiga skjálfti við Kleifarvatn

Jarðskjálfti af stærðinni 4,2 mældist í hádeginu við Kleifarvatn.
Jarðskjálfti af stærðinni 4,2 mældist í hádeginu við Kleifarvatn. mbl.is/Arnþór

Jarðskjálfti mældist 4,2 að stærð vestan við Kleifarvatn um klukkan 12 á hádegi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Skjálftinn var um 3,5 km vestur af Kleifarvatni en fjöldi eftirskjálfta fylgdi í kjölfarið. Þó nokkrir skjálftar hafa mælist yfir þremur að stærð.

„Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesinu. Þá hafa hafa um 1200 skjálftar mælst síðan á miðnætti, en í heildina hafa mælst rúmir 10.000 skjálftar frá því að hrinan byrjaði þann 30.júlí,“ segir í tilkynningunni.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert