Áhugavert að sjá hvort það bæti í virknina

Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur við gosstöðvarnar í Meradölum í dag.
Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur við gosstöðvarnar í Meradölum í dag. mbl.is/Sigurður Bogi

„Það er mikil gasmengun og stífur vindur hérna núna en aðstæður geta breyst fljótt og spurning hvað þetta svæði tekur af hrauni,“ segir Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur, sem var staddur við gosstöðvarnar fyrr í dag.

„Fylgjast þarf vel með þróuninni og það verður áhugavert að sjá hvort þetta einangrast á staka gíga eða hvort það bæti í virknina, nú fara í gang ýmsar mælingar og rannsóknir á hegðun gossins, efnasamsetningu hraunsins og ýmsum fleiri þáttum.“

Þetta hefur stækkað mjög hratt, heldur þú að þessi dalur eigi mikið eftir?

„Það er erfitt að segja, en það eru til nákvæm kort af svæðinu og hægt að reyna að meta það. Þetta er kraftmeiri byrjun en í síðasta gosi og þetta er svona lengri sprunga sem er opin.“

„Talsvert meira kvikustreymi“

Freysteinn segir eðli gossins vera svipað og síðasta goss.

„Þetta er bara kraftmeira heldur en var síðast, meiri kraftur í upphafi og flæðið af bergkviku er meira. Þetta er í samræmi við að það var meira magn af kviku á ferðinni neðanjarðar þessa daga fyrir gos. Frá því að innskotavirknin hófst var metið að það væri talsvert meira kvikustreymi og það er að skila sér núna upp á yfirborðið.“

Þá sé erfitt að segja til um hvað gosið muni vara lengi.

„Oft nýtum við okkur að fylgjast með mynstri jarðskorpuhreyfinga og hvort það hægi á kvikustreyminu, næstu dagar munu kannski segja okkur eitthvað um það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert