Ekki lengur neyðarstig vegna eldgossins

Almannavarnir hafa fært almannavarnastigið niður á hættustig.
Almannavarnir hafa fært almannavarnastigið niður á hættustig. mbl.is/Tómas Arnar

Almannavarnastig hefur verið lækkað úr neyðarstigi niður á hættustig. Talið er að eldgosið sé fremur lítið og ógni ekki byggð eða mannvirkjum, að því er fram kemur í tilkynningu almannavarna.

Vísindafólk og fulltrúi frá almannavörnum fóru í dag í könnunarflug yfir gosstöðvarnar til að meta umfang gossins. Eftir að búið var að fara yfir tiltæk gögn tók ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, ákvörðun um að lækka almannavarnastigið.

Í tilkynningu Veðurstofunnar frá því fyrr í dag segir að unnið sé að gerð rennslislíkans út frá fyrsta mati á hraunflæði í gosinu.

Líkan Veðurstofunnar.
Líkan Veðurstofunnar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert