Ekki mikill fjöldi farinn að skoða gosið

Eldgos hófst í dag.
Eldgos hófst í dag. mbl.is/Hákon Pálsson

Eldgos er hafið á Reykjanesskaga, nánar tiltekið í vestanverðum Meradölum. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að fyrstu aðgerðir séu að skoða aðstæður.

„Það er svo sem lítið annað um þetta að segja á þessari stundu.“

Aðspurður segir hann að það sé fólk sem fari og skoði gosið, en á augnablikinu sé sá fjöldi ekki mikill. Spurður hvort það sé gasmengun frá gosinu segir hann að líklegast séu gastegundir með svipuðum hætti og í fyrra.

Eldgos í Geldingsdal á Reykjanesi í fyrra.
Eldgos í Geldingsdal á Reykjanesi í fyrra. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert