Erlendir miðlar hafa þegar greint frá hraungosinu í vestanverðum Meradölum og talar franska fréttaveitan AFP um „déjá vu“ nærri Fagradalsfjalli.
„Eldgos er hafið á Íslandi nærri höfuðborginni, Reykjavík, að því er Veðurstofa Íslands greinir frá,“ segir þar, en gosið er staðsett um 40 kílómetra frá Reykjavík. Tekið er fram að gosið er ekki talið munu hafa áhrif á innviði enn sem komið er.
Þá segir í frétt breska miðilsins Metro: „Eldfjall nærri höfuðborg Íslands og alþjóðaflugvelli landsins, er farið að gjósa,“ við lítinn fögnuð netverja, enda eru Bretar minnugir eldgossins í Eyjafjallajökli árið 2010, sem teppti flugumferð.
„Ekki núna, Ísland,“ segir einn þeirra.
Einhver misskilningur er þarna á ferð þar sem vitað er að gosið er hraungos og skiptir því nálægð þess við flugvöllinn líklega litlu máli, að minnsta kosti í bili.
Been saying I miss the ash cloud for ages. I meant I miss when that was the news instead of all the current shit, not when it was the news AS WELL AS the current shit. https://t.co/QcGQkicRFK
— Rhys James (@rhysjamesy) August 3, 2022
Not now, Iceland. https://t.co/IxgXXJyFCT
— Tom Richards (@teorichards) August 3, 2022
BREAKING: A volcano close to the capital of Iceland and the country’s main airport has started to erupt.
— Metro (@MetroUK) August 3, 2022
The Icelandic Meteorological Office said the eruption is near the Fagradalsfjall mountain, 20 miles south-west of the capital Reykjavik.https://t.co/OX8jE00JvP
*ICELAND VOLCANIC ERUPTION REPORTED - @zerohedge
— Josh Young 🦬🛢️ (@Josh_Young_1) August 3, 2022
Hopefully no one is hurt. Could temporarily negatively impact jet fuel demand and potentially fuel for cooling demand.