Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn almannavarna funduðu í samhæfingarmiðstöð almannavarna fyrr í dag.
Í færslu Katrínar á Facebook kemur fram að verið sé að vakta mannaferðir og gasmengun, og að allir ferlar hafi virkað sem skyldi.
„Á dögum eins og þessum er dýrmætt að finna hvernig allir okkar viðbragðsaðilar á ólíkum stöðum vinna saman sem einn hugur. Eldgosið sem hófst í dag kom sem betur fer upp fjarri byggð. Verið er að vakta bæði mannaferðir og gasmengun og allir ferlar hafa virkað sem skyldi,“ skrifar ráðherrann í færslunni.