Forsetinn segir fólki að æða ekki á gosslóðir

Guðni heimsótti Grindavík í dag, áður en gosið hófst.
Guðni heimsótti Grindavík í dag, áður en gosið hófst. mbl.is/Hákon Pálsson

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segist vona að eldgosið sem nú er hafið á Reykjanesskaga valdi ekki skemmdum og usla og biðlar til fólks að „æða ekki út í óvissuna,“ það sé nægur tími til að sjá gosið seinna.

„Svona gerast hlutirnir hér á Íslandi. „Engin merki um gosóróa“ las ég í fréttum klukkan 12:55. Svo taka náttúruöflin til sinna ráða og nú vonum við bara það besta – að þetta gos valdi ekki skemmdum og usla,“ segir forsetinn inntur eftir viðbrögðum við fréttum af nýju eldgosi á Reykjanesskaga.

„En við hljótum að bíða og sjá hvernig atburðarásin verður.“ 

Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, Eliza Reid forsetafrú og Guðni Th. …
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, Eliza Reid forsetafrú og Guðni Th. í Grindavík fyrr í dag. mbl.is/Hákon Pálsson

Voru á gosslóðum

Guðni segir þau forsetahjónin hafi verið að öllum líkindum að keyra fram hjá Keili rétt í þann mund þegar gosið hófst.

„Nú er ég kominn út á Álftanes og horfi hér í suðurátt og sé reykmökk við Keili.“

Guðni segist treysta á viðbragðsáætlun almannavarna.

„[Ég] þykist vita að allir viðbragðsaðilar sitji hér á rökstólum og undirbúi nauðsynlegar aðgerðir og nauðsynleg viðbrögð.“

Eldgosið sem hófst nú rétt fyrir tvö.
Eldgosið sem hófst nú rétt fyrir tvö. mbl.is/Hákon Pálsson

„Við búum í landi elds og ísa

Þá biðlar hann til fólks að æða ekki út á Reykjanesskaga strax að sjá gosið.

„Ég bið bara fólk um að sýna ekki neitt óðagot og fara að öllu með ýtrustu varkárni. Vera ekki að ana út í óvissuna og leyfa hlutum að hafa sinn gang.

Verði þetta gos í einhverri líkingu við gosið sem síðast var á þessum slóðum þá mun það vara í dágóðan tíma, þannig við skulum ekki vera að rjúka til og halda á gosslóðir í stríðum straumum. Ég mæli ekkert með því.“

Við vitum að Ísland er ólíkindatól, ekki satt?

Guðni hlær. „Við búum í landi elds og ísa og högum okkur eftir því.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert