Það kemur í ljós síðar í vikunni hvernig mannamót yfir helgina höfðu áhrif á útbreiðslu Covid-19 hér á landi, að sögn Guðrúnar Aspelund, sem sinnir starfi sóttvarnalæknis í fjarveru Þórólfs Guðnasonar.
Um sextíu til hundrað kórónuveirusmit greindust á degi hverjum yfir verslunarmannahelgina sem er þó nokkuð lægri fjöldi en dagana á undan enda helmingi færri sýni tekin. Nýgengi innanlandssmita hefur verið á undanhaldi síðustu daga eftir að hafa farið upp á við í byrjun júlí.
Í gær lágu 40 á sjúkrahúsi með sjúkdóminn, þar af einn á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita á hverja hundrað þúsund íbúa síðustu tvær vikur er 660,2, að því er fram kemur á talnavef Covid.is.
Að sögn Guðrúnar eru það fyrst og fremst Íslendingar sem hafa verið að greinast hér á landi upp á síðkastið en færri ferðamenn hafa greinst samhliða því sem fleiri lönd falla frá kröfunni um neikvætt PCR-próf við komu, til að mynda Bandaríkin.
Aðspurð segir Guðrún að hún eigi erfitt með að gera sér grein fyrir hvort smitfjöldinn eigi eftir að taka stökk á næstu dögum vegna útihátíða og mannamóta yfir helgina.
„Mikið af þessu var náttúrulega úti og það er minni smithætta úti. En alls staðar þar sem fólk kemur saman í nánd og er þétt, eins og er á þessum útihátíðum, þá er möguleiki á smitum.“
Hún bindur þó vonir við það að útbreiddar bólusetningar og fyrri smit komi í veg fyrir alvarleg veikindi meðal fólks.