Fyrstu skref stigin í átt að gjaldfrjálsum leikskóla

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur ákveðið breytta gjaldtöku á fimm ára deild …
Bæjarráð Vestmannaeyja hefur ákveðið breytta gjaldtöku á fimm ára deild leikskóla bæjarins. mbl.is/Sigurður Bogi

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur ákveðið breytta gjaldtöku á fimm ára deild leikskóla bæjarins. Framvegis verða fyrstu sjö klukkustundir hvers dags gjaldfrjálsar.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, miðvikudag.

„Þetta var mikið í umræðunni í kosningabaráttunni. Fimm ára deildin er í raun og eru undir grunnskólanum hér og var tekin sú ákvörðun að byrja þar. Þá er fæðið auk þess gjaldfrjálst á fimm ára deildinni,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja.

Íris segir í samtali við Morgunblaðið að þetta séu einungis fyrstu skrefin í átt að gjaldfrjálsum leikskóla. Stefnan sé sett á enn frekari breytingar á leikskólagjöldunum. „Þetta eru öll fimm ára börn og eru fyrstu sjö klukkustundirnar á leikskólanum gjaldfrjálsar. Á tímum þar sem mikið er rætt um vinnutímastyttingu, er mikilvægt að stuðla að vinnutímastyttingu hjá börnunum líka, með því að hafa sjö tíma gjaldfrjálsa.“

Meira í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert