Gætu þurft að rýma svæði við gosstöðvarnar

Viðbragðsaðilar gætu þurft að rýma svæði við gosstöðvar fyrirvaralaust.
Viðbragðsaðilar gætu þurft að rýma svæði við gosstöðvar fyrirvaralaust. mbl.is/Arnþór

Búið er að loka fyrir akandi umferð á vegslóðum umhverfis gosstöðvarnar í Meradölum en umferðin er óheft um Reykjanesbraut og Suðurstrandarveg. 

Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir að verið sé að meta aðstæður reglulega en það geti komið til þess að rýma þurfi svæði nálægt gosstöðvunum fyrirvaralaust. Gasmengun sé við gosstöðvarnar en vindátt hagstæð eins og sakir standa.

Viðbragðsaðilar eru við gosstöðvarnar og er fólki eindregið ráðið frá því að leggja leið sína á svæðið á meðan að vísindamenn og viðbragðsaðilar eru þar við störf. Þá er tekið fram að akstur utan vega sé stranglega bannaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert