Gestir Bláa lónsins „rólegir og yfirvegaðir“

Helga segir að engar frekari ráðstafanir verði gerðar á þessum …
Helga segir að engar frekari ráðstafanir verði gerðar á þessum tímapunkti. mbl.is/Árni Sæberg

„Við höfum yfirfarið allar okkar áætlanir og erum í góðu sambandi við yfirvöld, rétt eins og meðan á hræringunum stóð,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu, í samtali við mbl.is.

Segir hún að engar frekari ráðstafanir verði gerðar á þessum tímapunkti í tengslum við eldgosið sem nú er hafið á Reykjanesskaga, nánar tiltekið í vestanverðum Meradölum.

Fylgjast vel með þróun mála

„Við gerum ráð fyrir, á þessum tímapunkti, að þetta muni þróast með svipuðum hætti og við fyrra gos,“ segir Helga.

„Við höfum engar sérstakar áhyggjur af stöðunni, en fylgjumst vel með þróun mála. Gestir okkar eru rólegir og yfirvegaðir en líka áhugasamir.“

Helga Árnadóttir er framkvæmdastjóri sölu-, markaðs- og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins.
Helga Árnadóttir er framkvæmdastjóri sölu-, markaðs- og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert