Ekki hefur orðið nein röskun á flugumferð vegna eldgossins við Fagradalsfjall sem hófst fyrr í dag og að öllu óbreyttu mun það haldast svoleiðis. Þetta staðfestir Grettir Gautason, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia.
Að sögn Grettis á Isavia í góðu samstarfi við Veðurstofuna en hann segir það þó vera á ábyrgð flugrekenda að taka ákvarðanir um flugferðir.
Litakóða fyrir flugumferð yfir Krýsuvík var breytt í rauðan þegar staðfesting á að gosið væri hafið barst.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá hefur litakóðinn ekki þau áhrif að bannað sé að fljúga yfir svæðið heldur merkir hann að möguleiki sé á því að aska berist upp í andrúmsloftið.