Gul veðurviðvörun er í gildi í dag og fram á kvöld á Ströndum og á Norðurlandi.
Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að það verði talsverð eða mikil rigning á Ströndum og Norðurlandi vestra, einkum austantil á svæðinu og á utanverðum Tröllaskaga. Búast megi við vexti í ám og að vatnsföll geti farið staðbundið yfir bakka sína.
Þá eru auknar líkur á grjóthruni og skriðuföllum. Veðurstofan bendir á hættu á kælingu og vosbúð þeim sem hyggja á útivist á svæðinu.
Um sömu sögu er að segja á Norðurlandi eystra.
Öflugur úrkomubakki gengur nú inn á norðanvert landið og í dag er útlit fyrir norðan 8-15 m/s með talsverðri eða mikilli rigningu á Norður- og Austurlandi. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.
„Auk þess verður svalt í veðri og því leiðinda aðstæður til útivistar,“ segir í hugleiðingunum.
Úrkomulítið verður í öðrum landshlutum og á Suðurlandi verður líklega nokkuð sólríkt, hiti á bilinu 10 til 16 stig yfir daginn. Hægari vindur í kvöld og dregur úr vætu.
Á morgun verður norðvestan kaldi eða strekkingur á landinu og áfram rigning og svalt veður norðantil. Úrkomuákefðin verður mun minni en í dag. Á sunnanverðu landinu verður veðrið áfram svipað, bjart með köflum og fremur milt yfir daginn. Annað kvöld lægir svo vestanlands og styttir upp fyrir norðan.