„Skjálftavirknin hefur aðeins verið að róast í kvöld, en annars er allt í gangi ennþá,“ segir Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Þá hafi hingað til ekki verið að mælast óróapúls, en hann mældist fyrir síðasta gos.
„Það er ein auka manneskja á vaktinni í kvöld, en við sjáum til hvort hún þurfi að vera áfram. Það er betra að hafa fleiri augu og við fylgjumst áfram vel með.“