Loftmengun gæti borist til byggða á föstudag

Loftmengunarefni losna nú út í andrúmsloftið. Þorsteinn Jóhannson, sérfræðingur í …
Loftmengunarefni losna nú út í andrúmsloftið. Þorsteinn Jóhannson, sérfræðingur í loftgæðamálum hjá Umhverfisstofnunar, segir að líklegast séu þau svipuð og í fyrra gosi. mbl.is/Arnþór Birkisson

Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftgæðamálum hjá Umhverfisstofnun, segir að líklegast verði loftmengunarefni sem losna nú út í andrúmsloftið í kjölfar þess að gos hófst í dag í Meradölum svipuð og í fyrra gosi. Gosið mun ekki trufla flugumferð en hefur þó áhrif á fólk.

„Það má búast við svipuðum aðstæðum og í síðasta gosi. En við vitum ekki hversu stórt þetta gos er. Mengunin er í takt við stærð gossins, það er að segja því stærra gos því meiri mengun, þannig að það er of snemmt að segja til um hversu mikil hún verði.

En það er alveg háð vindátt hvert hún fer. En það eru norðlægar áttir, þannig að það berst ekki yfir byggð. Á föstudaginn gæti það hins vegar borist til byggða, þannig að við reynum að fylgjast vel með,“ segir hann í samtali við mbl.is.

Viðkvæmir passi sig

Spurður hversu skaðleg mengunin geti verið fyrir fólk segir hann að ef við miðum við gosið í fyrra þá eru það þeir sem eru mjög viðkvæmir fyrir, til að mynda þeir sem eru með öndunarfærasjúkdóma, sem verða að passa sig. Flestir finna þó lítið fyrir menguninni þó að suma daga sé ráðlagt að vera sem minnst úti þegar mengunin er mikil.

Þorsteinn bendir landsmönnum á að fylgjast með loftgæðamælingum Umhverfisstofnunar, en á síðu Umhverfisstofnunar má sjá loftgæði víðs vegar um landið.

Þá er einnig hægt að sjá viðbrögð við loftmengun frá eldgosum þar sem ráðleggingar Umhverfisstofnunar koma fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert