Björgunarsveitir á Reykjanesi hafa verið kallaðar út vegna eldgossins sem er nú hafið á Reykjanesskaga.
Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík, segir að byrjað verði á því að loka veginum upp í Meradali sem er gamall moldarvegur.
Hann segist gera ráð fyrir því að einhverjir muni gera tilraun til að komast í nálægð við gosstöðvarnar til að berja þær augum.
Hann mælir þó gegn því til að byrja með enda fylgir eldgosinu mikið gas. Skynsamara væri að bíða.