Óvissustigi aflétt á Sjúkrahúsinu á Akureyri

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Óvissustigi hefur verið aflétt á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAK). Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga á sjúkrahúsinu, staðfestir þetta í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is um málið.

Enn eru legudeildir þéttsetnar og ekki er fullmannað í allar stöður en unnið er að því að leysa úr því.

Þá hefur starfsfólk lagt á sig umtalsverða auka vinnu svo tryggja megi þjónustu við skjólstæðinga SAK. Sneiðmyndatæki sem bilaði fyrir helgi er komið í lag þannig að ekki verða truflanir á eða tafir á greiningu í tilfellum þar sem notkun þess skiptir höfuðmáli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert