Fyrir dyrum stendur að loka pósthúsinu í Grindavík og færa þjónustuna í svipað horf og verið hefur í Rangárvallasýslu, eftir að pósthúsum á Hellu og Hvolsvelli var lokað. Bæjarráð Grindavíkur fjallaði um málið í síðustu viku og var bókað, að bæjaryfirvöld mótmæltu þessum áformum harðlega.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, miðvikudag.
Í bókuninni kemur einnig fram að bilanir hafi orðið í póstboxum og að ferðir póstbíls séu áætlaðar þegar meginþorri manna er í vinnunni. Þetta sýni að þjónustustigið sé ekki viðunandi.
„Bæjarráðið er með bókuninni að mótmæla því að verið sé að loka pósthúsinu og þeirri skerðingu á þjónustu sem fylgir í kjölfarið. Grindavík er bæjarfélag sem telur um 3.600 manns. Við lítum svo á að það séu engin rök fyrir því að loka pósthúsinu hérna,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur.
Fannar segir að Íslandspóstur geri ráð fyrir að breytingarnar taki gildi með haustinu.
„Póstafgreiðslan hefur verið í húsi Landsbankans hér í Grindavík, þannig að það er ekki verið að reka sérstakt pósthús hér í bænum, heldur höfum við litið þannig á að það hljóti að vera ákveðin samlegðaráhrif og sparnaður með þessu fyrirkomulagi. Skoðun bæjarbúa er skýr. Það er verið að skerða póstþjónustu í bæjarfélaginu og færa hana í verra horf. Við teljum að jafnstórt og öflugt bæjarfélag eins og Grindavík eigi það ekki skilið að póstafgreiðslunni verði lokað.“
Meira í Morgunblaðinu í dag.