Talið er að gossprungan sem opnaðist fyrr í dag við Fagradalsfjall hafi verið um 260 metrar að lengd klukkan 16.20, ef marka má mælingar sérfræðinga í Eldfjallafræði- og náttúruvárhópi Háskóla Íslands, en teymi á þeirra vegum hefur verið að störfum við gosstöðvarnar í dag.
Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur og ein þeirra sem kemur að mælingunum, segir að drónar hafi verið notaðir til að mynda gosstöðvarnar en þeir eru jafnframt með nákvæm staðsetningartæki sem hægt er að nýta til þess að skrá nákvæm hnit sprungunnar.
Með þessari tækni er hægt að setja saman samfellda loftmynd af svæðinu sem sýnir lengd sprungunnar. Með reglulegum mælingum er síðan hægt að fylgjast með þróun sprungunnar. Að sögn Ingibjargar er því gott að vera með mælingar nokkuð oft þegar eldgosið er ný hafið.
Þá er einnig unnið að því að setja saman þrívíddarlíkan sem sýnir hvernig hraunið kemur upp úr gossprungunni. Það verður mögulega tilbúið á morgun.