Fjölmargar ábendingar hafa borist mbl.is á undanfarinni klukkustund, um blossa sem virðast koma upp með reyknum, sem sjá má á vefmyndavél mbl.is.
„Við erum að fylgjast með þessu og erum búin að láta almannavarnir vita,“ segir Hulda Rós Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, í samtali við mbl.is.
„Það verður sennilega farið í flug þarna yfir til að skoða þetta nánar,“ bætir hún við.
Fyrst var greint frá reyknum á mbl.is um klukkan hálfátta í kvöld.
„Þetta er enn þá bara svo lítið, að það er óljóst hvað er í gangi. Einhver nefndi að þetta gæti verið sinubruni, en þá er spurningin: Hvað er það sem kveikir í sinunni?“ segir Hulda.
„Þetta er alla vega frekar skrýtið. En við sjáum til hvernig þetta þróast.“
Fylgjast má með útsendingunni hér að neðan:
Þröstur Magnússon, sem gekk um þessar slóðir um klukkan 19 í kvöld, sagði mbl.is frá upplifun sinni skömmu fyrir miðnætti.
„Við erum að koma þarna yfir hæðina þegar við förum að finna rosalega mikla lykt og vorum svolítið að furða okkur á því, en þegar við erum komnir yfir hæðina sjáum við þennan hvíta reyk alveg töluvert langt í burtu.“