Sumarið ekki dauðadæmt

Hæsti hiti sem mældist í júlí var 15,9 gráður, sem …
Hæsti hiti sem mældist í júlí var 15,9 gráður, sem hefur ekki gerst í 33 ár. mbl.is/Arnþór Birkisson

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sumarið sé alls ekki dauðadæmt, enda sé það aðeins hálfnað. 

Athygli vakti í gær þegar Einar birti pistil um óvenjulega kalt veðurfar í júlímánuði í gær en hæsti hiti sem mældist í mánuðinum var 15,9 gráður, lægsti hæsti hiti sem mælst hefur í júlímánuði í 33 ár.

Eru köld sumur nokkuð komin til þess að vera?

„Nei, alls ekki. Síður en svo. En þau geta komið, nú sem áður, sumur sem eru öðruvísi – kaldari og svalari,“ segir Einar í samtali við mbl.is og bætir við að Íslendingar hafi séð alls kyns sumur síðustu ár.

Hlýnunin spili mögulega inn

Hann segir ekkert benda til þess að Ísland sé á leið í annað far en þó séu kenningar uppi á borðum um meiri sveiflur og öfgar í veðurfari í tengslum við loftslagshlýnunina.

„Það er ekkert hönd á festu hvað það varðar ennþá. Til þessa hefur breytileikinn í sumarveðráttunni verið svo mikill þegar við horfum til síðustu tveggja alda, að það er ekki farið út fyrir það sem við eigum von á þar.“

Hörfun hafíssins hefur breytt veðurfari hér á landi og víðast …
Hörfun hafíssins hefur breytt veðurfari hér á landi og víðast hvar á norðurhjaranum. AFP

Hlýnun spilar þó mögulega inn í. „Það er minni hitamunur á milli hitabeltisins og póla en var áður. Það er hlýrra á norðurhjaranum,“ segir hann en það orsakast í minni ferð á háloftavindunum og óvenjulegri vindátt. Það mun vera vegna hörfun hafíssins.

Athygli vakti í fyrrahaust þegar óveður var á norvestanverðu landinu og meiri öldugangur inn í firðina en vant er.

Sumarið bara hálfnað

Einar bendir á að þrátt fyrir að júlímánuður hafi verið óvenjulega kaldur þá sé það ekki endilega dauðadómur fyrir sumarið í heild.

„Íslenska sumarið er nú bara frá júní til september, þannig það er bara rétt rúmlega hálfnað. Maí er nú bara vormánuður og stundum horfa menn á júní, júlí og ágúst en við höfum skilgreint það sem fjóra mánuði.“

Ágústmánuður gæti alveg orðið góður og jafnvel september.
Ágústmánuður gæti alveg orðið góður og jafnvel september. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nú sé spurning hvort kuldinn í júlímánuði haldist út sumarið eða hvort það verði kaflaskipti.

„Í fyrra var mjög einsleit tíð, alveg frá því upp úr Jónsmessu og fram í byrjun september,“ segir hann og rifjar upp það hlýja veður sem var norðaustanlands og það þungbúna suðvestanlands í fyrrasumar.

Er okkur óhætt að vera bjartsýn fyrir ágústmánuði?

„Já, að sjálfsögðu. Það er heilmikið eftir af sumrinu. Það leit nú út fyrir að kæmi gusa af hlýju lofti til okkar um næstu helgi eða upp úr henni. Það er nú langt frá því alveg tryggt en það er hægt að bíða og vona eftir að fá góða daga. Þeir hljóta að koma á endanum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert