Tjald stóð í ljósum logum í nótt

Tjaldið stóð í ljósum logum í nótt þegar að slökkviliðið …
Tjaldið stóð í ljósum logum í nótt þegar að slökkviliðið bar að garði. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt upp úr klukkan fjögur í nótt vegna elds sem kom upp í tjaldi á tjaldsvæðinu í Laugardalnum. Þegar slökkviliðið kom á vettvang stóð tjaldið í ljósum logum en það brann til kaldra kola.

Þetta staðfestir slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í samtali við mbl.is.

Starf slökkviliðsins gekk vel eftir að það var mætt á vettvang klukkan 20 mínútur yfir fjögur í nótt og tók stutta stund að stöðva eldinn. Að sögn slökkviliðsmanna var engin hætta á að eldurinn myndi dreifa sér í gróður eða nærliggjandi tjöld. Engan sakaði í eldinum.

Slökkviliðið vildi ekki tjá sig um upptök eldsins og sagði að málið væri komið til rannsóknar hjá lögreglu. Það vildi heldur ekki gefa upp neinar upplýsingar hvort Íslendingar eða erlendir ferðamenn hefðu dvalið í tjaldinu þegar eldurinn upphófst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert