Upptökin á ákjósanlegasta stað

Fannar segir nokkuð langt í að innviðir fari undir hraun.
Fannar segir nokkuð langt í að innviðir fari undir hraun. mbl.is/Hákon

„Þetta er ekki alveg nýtt fyrir okkur þannig að kosturinn er sá að menn eru að fara í sín gömlu hlutverk og allir vita hvað þeir eiga að gera,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, í samtali við blaðamann mbl.is á gossvæðinu.

Fannar segir að upptök eldgossins séu á einum ákjósanlegasta staðnum hvað hraunrennsli varðar. „En það er kannski ekki alveg eins gott að verja svæðið og koma björgun og björgunaraðilum hingað inn úr, en allt hefur sína kosti og galla,“ bætir hann við.

„En það er nokkuð langt í það að einhverjir innviðir fari undir hraun, finnst okkur.“

Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bíða átekta og flýta sér hægt

Munu þið hefja einhverja uppbyggingu á varnargörðum nú þegar ljóst er hvar hraunið kemur upp?

„Nei, það verður ekki gert strax, það verður fylgst með hvernig þetta þróast. Við höfum reynslu af því að hraunið er ólíkindatól og fer ekki alveg í lægsta farvegi, þannig að menn bíða átekta og flýta sér hægt í þessu, reynslunni ríkari.“

„Almannavarnir hafa gefið það út að fólk eigi ekki að vera að koma hingað á staðinn og það eru ekkert aðgengilegar leiðir hérna,“ segir Fannar. Fólk eigi ekki að leggja af stað í langar ferðir nema að vera vel búið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert