Veðurstofan birtir myndir úr flugi yfir gosstöðvar

Nýja sprungan er staðsett við norðurjaðar nýja hraunsins um 1,5 …
Nýja sprungan er staðsett við norðurjaðar nýja hraunsins um 1,5 km norður af Stóra-Hrúti. Ljósmynd/Veðurstofan

Veðurstofa Íslands birti fyrir skömmu myndir sem teknar voru úr flugvél sem flaug fram hjá gosstöðvunum á Reykjanesskaga.

Þetta mun vera fyrsta myndin sem stofnunin birtir af nýju sprungunni við Fagradalsfjall.

Sprungan er staðsett við norðurjaðar nýja hraunsins um 1,5 kílómetra norður af Stóra-Hrúti, að því er fram kemur í færslu Veðurstofunnar á Facebook, þar sem myndin er birt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert