Eldgosið vinsælast hjá BBC

Talið er að nokkur þúsund hafi farið að gosstöðvunum í …
Talið er að nokkur þúsund hafi farið að gosstöðvunum í gær. mbl.is/Sigurður Bogi

Myndskeið frá gosstöðvunum í Meradölum er það sem mest hefur verið horft á á vef BBC í dag. Þar er meðal annars rætt við tvo erlenda ferðamenn við gosið.

„Ég varð að setjast niður og gráta svolítið af því að þetta er svo fallegt og svo tilfinningaríkt,“ segir ferðamaðurinn við BBC. Hana hafi langað að sjá eldgos í mörg ár.

Talið er að nokkur þúsund hafi farið að gosstöðvunum í gær og voru fleiri erlendir ferðamenn á svæðinu heldur en Íslendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert