Gripinn með heimasmíðuð skráningarnúmer

Ökumaðurinn verður kærður fyrir brot sín.
Ökumaðurinn verður kærður fyrir brot sín. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á stöð 1 á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ökumann sem reyndist vera réttindalaus. Þá var ástand ökutækisins sem hann ók ekki í lagi og var honum gert að færa bifreiðina til skoðunar.

Hann hafði einnig tekið upp á því að vera með skráningarnúmer á bifreiðinni sem hann hafði smíðað sjálfur „listilega vel“, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Segir einnig að ökumaðurinn verði kærður fyrir brot sín.

Læstu sig inni á salerni

Lögreglu barst einnig tilkynning um tvo einstaklinga sem höfðu læst sig inni á salerni matsölustaðar. Þeim var vísað burt.

Þá var einnig tilkynnt um mann í stigagangi fjölbýlishúss sem svaf þar ölvunarsvefni. Var maðurinn vakinn og honum vísað burt.

Lögreglustöð 1 sinnir verkefnum í miðborginni, Vesturbæ, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert